Betan blaðrar......
þriðjudagur, nóvember 24
Staksteinar mbl í dag hohohoho
Maður nokkur á 150 þúsund krónur á reikningi í Spron. Hann er færður í Nýja Kaupþing og nýjustu fréttir eru að nú sé hann staddur í Arion banka. Kannski er vissara fyrir viðkomandi að taka strax út því ýmislegt bendir til að bankinn þurfi jafnvel að breyta um nafn fyrr en varir.
Þessi maður sem á 150 þúsundin í Spron, Nýja Kaupþingi og Arion skilur loksins hvað hlaupareikningur þýðir, en það er svona reikningur sem hleypur á milli banka.
En hann skilur líka að bankanum hans þykir ekki mikið til hans koma. Hann hefur aldrei skuldað svona í kringum þrjú hundruð milljarða í gamla Kaupþingi, annað eins og rúmlega það í gamla Landsbankanum og gamla Glitni og gamla Byr og gamla Nóa, lífeyrisþega, minnir að hann skuldi líka sér nokkra milljarða. Þess vegna veit þessi ómerkilegi innistæðueigandi að honum verður enginn sómi sýndur í gamla bankanum með nýja nafnið.
En Ari Edwald og Jón Ásgeir eru víst þrátt fyrir allt dálítið feimnir við að nýi bankinn skuli skírður í höfuðið á þeim, Arijón. Svo er röðin dálítið sérstök miðað við stöðu og umsvif. Kom aldrei til greina að bankinn fengi nafnið Jónari? Eða þótti hinum nýju bankastjórum frá eld- eldgamla Íslandi það of stórt skref? Þeir gera það þá bara í næstu nafnalotu. Hún getur ekki verið langt undan.

þriðjudagur, nóvember 17
Bloggið
Ætli bloggið sé að lognast út af?
Ósköp lítið sem ég nenni að henda hingað inn enda saumósíðurnar orðnar þrjár sem er meira en nóg.
Skerið hefur ekkert breyst þennan tíma sem ég hef verið í burtu og Njállinn alveg yndislegur. Málaði eins og vindurinn og tók alla íbúðina á 2 dögum sem ég tel nokkuð gott og ekki þurfti Betan neina hjálp nema við að flytja kassana 60 sem ég og fékk.
Allt eins og nýtt fyrir utan nokkrar rispur á parketinu og brotinn sökkul undir eldhúsinnréttingunni eftir Securitasmanninn sem þurfti að færa kerfið í ljósleiðarann svo ég kvarta ekki.
Nýjar gardínur, fíni stóllinn minn og allt komið í hillur og skápa svo nú er slotið tilbúið undir partýhald eftir að ég kaupi nýja gólflista á ganginn.
London í næstu viku og ég tel niður dagana. Erum líklega búin að fá æðislega íbúð undir okkur 5 og svo fæ ég að gista hjá Cillunni minni í þrjá daga eða öllu heldur með Cillu heima hjá Sollu eftir að familían fer heim!
Er alveg komin með lista í hausnum yfir það sem ég ætla að gera úti, verður yndislegt. Mun sleppa stórinnkaupum enda ekki þörf á því heldur á að missa sig í matarbúðunum og kaupa garn, efni og annað föndurdót sem kostar hálfan handlegginn hérna heima.
Bústaðferð á fimmtudaginn, saumó í kvöld, vinna á morgun svo það er alltaf e-ð í gangi og ef að væri ekki fyrir þetta helvítis myrkur færi ég alla daga á fætur klukkan 7....

sunnudagur, október 25
Mogginn
Nokkuð sátt við breytinguna á Mogganum þrátt fyrir að mér hafi fundist Sunnudagsmogginn ómissandi um helgar. Las hann hverja helgi úti í gegnum áskrift afa gamla og sleppti varla úr skipti.
Morguninn var ljúfur og ég eyddi löngum tíma yfir aukablaðinu á meðan örverpið hraut í pabba og mömmu rúmi. Afar hentugt að þau fóru í helgarferð og við systur búnar að leggja undir okkur húsið og rúmið þeirra og hafa það afar náðugt.
Ég horfði á KR stelpurnar taka Víking 2-0 og var eins og brjáluð móðir á hliðarlínunni gargandi í gær. Aujan og stelpurnar mjög ánægðar og ekki verra að við héldum áfram í boltagleðinni yfir pönnsum hjá afa og ömmu og horfðum á landsleikinn!
Eyddum kvöldinu í að bíða eftir ólöglegu niðurhali og þegar það var komið og usb lykillinn kominn í sjónvarpið fengum við enga mynd en bara tal. Mesta pirrandi en ég prófa þetta aftur á eftir enda má ekki missa af íslensku grínþáttunum og nauðsyn að fylgjast með.
Vika í Njálinn og ég með fiðring í maganum að taka allt úr kössunum, þeim sem komu frá London og hinum sem hafa verið í geymslu í 3 ár. Tvöföld jól þetta árið má segja eða svona næstum því.
Fullbókuð vika framundan, vinna og hittingar svo tíminn verður fljótur að líða - ekki leiðinlegt....

fimmtudagur, október 1
Skerið
Mætt á skerið og búin að knúsa familíuna og frænkuna mína sætu sem fer svo frá mér strax á morgun. En við náðum lunch, rúnti, Laugavegslabbi og stoppi á nokkrum kaffihúsum og enduðum í saumaklúbbi sem var nú ekki leiðinlegt.
Er að hugsa um að sooooooofa á morgun og helst bara ekkert vakna fyrr en 1.nóvember þegar við fáum Njálinn að nýju og búslóðin verður komin heim. Efa samt að það verði rólegheit á næstunni enda nóg um að vera í félagslífinu og svo þarf víst að huga að vinnumálum....
Það er samt alltof kalt á skerinu og ég búin að eyða hitamælinum yfir London út af desktoppinu á tölvunni minni - bara 20° þar í dag. Þýðir ekki að sakna stórborgarinnar á fyrstu klukkutímunum hérna heima.
Og já kreppan er ekki búin þegar Bakkabræður geta enn flogið á Saga Class þegar Flugleiðir fljúga með tóma vél á milli landa! Ég hafi a.m.k. nokkrar sætaraðir fyrir mig eina en þeim er nú vorkunn, einkaþotan farin og svona. Ég er auðvitað að safna fyrir henni fyrst Hreiðar Már getur ekki gefið mér lán á spottprís sem þarf ekkert að borga aftur, only 173 years to go á fína genginu sem er í gangi. Kannski kallinn láni mér þó fyrir bensinínu á vélina þar sem það er aðeins ódýrara og bræðurnir geta fengið far greyin....

sunnudagur, september 27
Skerið að nýju
Búið að vera brjálað að gera seinustu dagana en rosalega gaman fyrir utan pökkunarstúss. Ekkert grín að ákveða hvað fer heim með mér og hvað á brettinu svo ég hef nú ekki mikið af fötum til skiptanna í október enda allt mitt hafurtask hér í London og ég er heppin ef ég á sokkapar í Skerjó!
Ingan mín farin eftir æði heimsókn. Hugguðum okkur og kíktum aðeins í búðir og borðuðum aðeins af sushi. Tók hana á Broadway markaðinn minn sem ég kvaddi í gær og ekki glöð. Skellti mér í gymið áðan og kvaddi þar og ekki glöð og fer að kveðja nokkra vini mína úr skólanum annað kvöld og verð örugglega ekki glöð heldur þá. Juan vinur minn ætlar að koma í fyrramálið að hjálpa til við að koma kössunum 25 úr íbúðinni út á gangstétt þar sem bílstjórinn sem sækir herlegheitin má ekki hjálpa til við burðinn! Það er ekki annað hægt að hlæja að þessum Bretum á stundum og skipti engu máli þótt ég myndi borga aukalega því kallinn er ekki tryggður til að hjálpa - gæti náttúrulega bakbrotið sig og svona!
Hér er svoleiðis bongóblíðan og ég labbaði heim áðan á bol og kvartbuxum. Verður e-ð annað á skerinu eftir 2 daga en ég mun þó ekki vera á Flateyri í ófærð eins og sumir. Varla að ég hafi farið í kápu síðan um jólin og alltaf léttklædd í opnum hælum. Stígvélin mín taka hálfa töskuna og skikkjan mín ekki minna svo kannski ég mæti bara í nærfötum, stígvélum og skikkjunni í Reykjavíkina í vikunni - þetta er frekar erfitt en samt pínu gaman líka....
2 days to go....

miðvikudagur, september 16
London baby
Síðustu dagarnir í London og mér finnst ég þurfa að gera fullt áður en ég fer. Er að hugsa um að vera smá túristi og kíkja á það sem ég hef látið vera hingað til. Taka safnarúntinn, skella mér á klassíska tónleika, fara og kveðja Broadway markaðinn minn, detta í slúðurblöðin og kveðja bekkjarfélagana.
Búin að pakka niður e-ð af búslóðinni og það er ekkert grín hversu mikið drasl hefur safnast saman. Ekki nema 25 kassar og meira til og ég fljót að fylla þá af hinu og þessu og dóti sem vantar nauðsynlega á Njálinn fyrir utan fötin sem þarf auðvitað að kaupa. Hef ekki notað kápu í þrjú ár enda oftast svo hlýtt hérna og nóg að vera léttklædd með trefil svo ég þarf auðvitað að finna eina fína fyrir veturinn, pelsinn sem ég fann í seinustu viku dugir nefnilega ekki sjáið þið til.
Verður skrítið að koma heim en ég hlakka líka til og nóg um að vera þessa seinusti daga. Siggan mín farin, Pingan kemur í næstu viku, Cambridge með Jamie vinkonu minni á morgun og Gigja í næstu viku svo þessi stutti tími sem eftir er mun líða hratt og skemmtilega....

fimmtudagur, september 10
101
Jújú títtnefndar ábendingar komu inn um lúguna á Njálnum. Gamli las úr bréfinu fyrir frumburðinn og við skellihlógum að bullinu. Hver heilvita maður sér að það eru framkvæmdir í gangi í garðinum og til hvers að eyða peningum borgarbúa í að taka út hús sem eru snyrtileg? Ég veit vel að það þarf að mála gluggakarmana og helst skipta um gler á nokkrum stöðum en alltaf gott að ítreka það sem betur má fara eða hvað!
Í góðu lagi að minnast á ruslið á sumum lóðunum en að taka út heilu húseignirnar er annað mál. Við borguðum ekki nema 40þúsund fyrir skoðunarmann á Njálinn þegar gólfskemmdir á íbúðinni komu í ljós þegar við rifum upp ónýtt parketið. Hvað ætli húsúttektin hafi þá kostað borgina í 101?
Nettur brandari en alltaf gott að fá "ókeypis" ráð. Vona að nágranni minn sem byggði húsið og er á móti hússjóðnum og annarri þess háttar vitleysu hafi líka fengið bréf, hann hættir þá kannski að tala við borgarstarfsmennina eins og hann hefur hætt að tala við alla nágrannana sína og ég tel mig heppna að hann þegir í stað þess að skammast. Verður gaman að banka upp á hjá honum næsta vor til að fá smá bláa málningu til að sletta á svalirnar og athuga hvort við getum verið sammála um e-ð.
Sakna Njálsins og hvað sem ástandsbréfi borgarinnar líður verður gaman að komast þangað í desember, er eiginlega nokkuð spennt...

föstudagur, september 4
Hvað er að þessu fréttaliði alltaf?
Af hverju er fyrirsögnin ekki um aðgerðirnar sem þarf að ráðast í??
Forstjórar koma og fara og allt í góðu en loksins þegar fréttir af heilbrigðiskerfinu koma inn þá eru þær ómerkilegar og skipta ekki máli.
Þekki eina hjúkku með 30 ára starfsaldur sem hefur fengið 14 uppsagnarbréf á starfsferli sínum, starfsferill sem er nota bene innan sömu stofnunar!
Uppsagnirnar hafa ávallt verið í "hagræðingarskyni" og kemur ekki á óvart að margir úr þessari stétt eru orðnir þreyttir og pirraðir og nei þá er ég ekki að tala um lækna.
Veit e-r hvað eru mörg launþrep í heilbrigðiskerfinu? Ég kann nú alveg að telja en gafst upp í flokki B, þrepi 7.
Hver segir að það sé gott að vinna hjá Ríkinu og ef menn bæta við að kennarar búi við lúxus byrja ég fyrst að garga. Vanþakklæti og léleg laun og ótrúlegt hvað fólk þraukar.
En hvað er hægt að gera?
Kvarta og koma í Lastljósið með ábendingar sem verður búið að gleyma um leið og fólk dettur í næsta dagskrárlið: Sögur að Sunnan.
Hvar endar þetta allt saman??
Ætli ég komist ekki að því fljótlega enda komin með miða aðra leiðina á skerið.
Og fyrst ég er að kvarta, má ekki spreða opnu í Fréttablaðið um fólkið sem er að koma heim en ekki flýja og plís ekki meira um fjölmiðlafólk á ferðinni. Ég er venjuleg og vil líka sögur af Jóni og Gunnu sem gengur vel og líta á skerið sem góðan stað til að búa á.....

laugardagur, ágúst 29
6 dagar í skil
Eða eiginlega 5 því ég ætla að prenta út gleðina á fimmtudaginn.
Ekki fræðilegur að ég fari í Phd og veit ekki hvernig mér datt slík vitleysa í hug í sumar þegar mér fannst það rökrétt áframhald hjá mér. Það er samt ekki lengra síðan en í seinustu viku að ég sagði sambýlismanninum að mig langar í einn tölfræðikúrs við HÍ í vor, það sem ég sé það ekki gerast einmitt núna!
Ætla að skrifa þetta e-s staðar niður svo ég sjái ekki frekara nám í dýrðarljóma í framtíðinni eða gleymi þessu bara þegar að því kemur, er það ekki öllu líklegra?
Go go go go go go....

miðvikudagur, ágúst 26
Allt að gerast
Styttist í skil, styttist í Siggu Birnu, styttist í að sambýlismaðurinn fari á skerið, styttist í Ingu Lilý, styttist í Tori Amos og vonandi líka Massive Attack, styttist í seinustu Londonarkaup, styttist í að pakka niður dóti, styttist í familíuknús, styttist í flutninga, styttist í vinaknús, styttist í bílakaup, styttist í Flateyri í stutt stopp, styttist í Njálinn, styttist í London að nýju en í stutt stopp, styttist í Depeche Mode, styttist í svoooo margt að kollurinn snýst og fingurnir missa það á lyklaborðinu.
Styttist í 4.september og Betan megi pæla í öllu sem styttist í en þangað til er það gæðastjórnun og Deming á fullum krafti....

miðvikudagur, ágúst 19
Ekkert stuð - bara sviti
Það er heitt, of heitt til að vera inni að lesa og þó það væri ekki heitt þá á ég ekki þurfa að vera inni í ritgerðavinnunni. Mig langar að spóka mig í sólinni og hafa það huggulegt.
Svo þarf að labba heim á eftir, já labba segi ég því ég á ekkert hjól í London lengur. Mitt gamla á skerinu er ekkert að bæta upp fyrir þetta mál og ég er brjáluð. 35 mínútna labb í skólann eða yfirfullt og heitt tube í staðinn fyrir vind í andlitið og 5 mínútna ferð þar sem ég finn ekki fyrir þunganum af töskunni á bakinu eða hinni í körfunni.
Hver líka stelur hjóli sem er geymt inni??
Skítapakk og ég búin að ákveða að prumpa á nýju miðhæðar nágrannana þar sem þeir voru að flytja um helgina og höfðu hurðina opna. Sambýlismaðurinn þorði ekki að skamma stelpuskjátuna þar sem hún var svo miður sín yfir málinu!
Gæti ekki verið meira sama og ef ég sé hana koma með hjól í húsið skal ég opna út um leið og verða rooooosalega sorry yfir því að hafa skilið eftir hurð opna upp á gátt og kannski bara prumpa einn góðri sprengju eftir múslíát með auka rúsínum og hjóla svo í burtu á e-u af fjórum hjólum krakkanna á jarðhæðinni sem þjófurinn hefði auðvitað átt að taka eitt frá í staðinn fyrir mitt einar!
En jæja það má ekki kvarta blablabla, mitt líf blablabla og það sem ég ákvað að gera blablabla. Tvær og hálf vika í geðveiki og U2 um helgina. Verst að ég get ekki hlakkað til því ég þarf allan minn tíma í ritgerðaskrif, glatað.
Þarf að búa til lista yfir alla skemmtilegu hlutina sem á að gera í september, trúi að sambýlismaðurinn fari fyrr heim en hann ætlar þegar hann sér herlegheitin!
Svona er ég nú skemmtileg þessa dagana, alveg brosi bara hringinn og dansa í sólinni.......

mánudagur, ágúst 10
Nýtt hár
Fór í klippingu hér í borg í fyrsta sinn eða öllu heldur var klippt í London. Gamla íslenska klippikonan mín er nefnilega búin að vera búsett hérna í mörg ár og ég náði loksins í hana. Mætti ekki skvísan heim og gerði Betuna fína og ég fékk æði blaðursession að auki, næst læt ég lita líka og get þá blaðrað í 3 tíma!
Ætla að spóka mig með fína hárið á næstu dögum. Eins og allir vita er nauðsynlegt að hafa fallegt og vel snyrt hár þegar maður fer í joggarann á hverjum degi eða í föstudagskjólinn og mætir á safnið þar sem ENGINN tekur eftir manni.
Beauty is not a pain, only necessary.....

fimmtudagur, ágúst 6
Betan bráðnar
Ólíft í London. Rakinn í botni og svo heitt að ég svitna bara við tilhugsunina, ofan á svitann sem er í gangi núna!
Pub Quiz í kvöld og vonandi að maður geti e-ð. Annars skilst mér að við verðum nokkuð mörg í þetta skiptið svo ég get kannski bara blaðrað og reynt við söguspurningar um enskar orrustur á 17.öld eða giskað á hverjir léku í Hollyoaks 95!
Kemur í ljós
Svo er það tíminn sem flýgur hraðar en geitungur og styttist í skil, styttist í stórar ákvarðanir, styttist í gömlu í heimsókn, styttist í músarlaust heimili, styttist í örverpið (vonandi), styttist í nammidag og styttist í meira og meira og færra.
Langar í strönd, kokteil og vindsæng og jú aðstoðarmann við ritgerðarskrif....

föstudagur, júlí 24
Svona er London í dag
Carol dó síðastliðinn þriðjudag. Hún festi sig á límpappír sem var komið fyrir til að losna við hana.
Veiðin mikla var tekin upp á myndband og myndbandið klippt til og dreift á meðal almennings. Því miður var hljóðið e-ð að stríða okkur og þar af leiðandi náðist ekki tíst Carolar í dauðateygjunum almennilega með. Eins vantar nokkur skot frá öðrum aðalleikara myndarinnar, Elísabetu Árnadóttur, þar sem hún stendur uppi á kolli og segist ekki vilja láta töpperver undir líkið heldur einungis einnota box með loki.
Carol the mouse
Myndbandið hefur verið tilnefnt til óskarsverðlauna sem besta erlenda myndin og fyrir klippingu og tónlist. Vangelis sá um stefið og Harry Weinstein sá um framleiðslu fyrir Youtube

þriðjudagur, júlí 21
Crochet
Heklunámskeiðið mitt er búið og ég pínu leið. Væri alveg til í að fara hvern einasta sunnudag; hekla, drekka te og kjafta á meðan Bee, já kennarinn heitir Bee, labbar á milli og gefur góð ráð á milli þess sem hún fórnar höndum og jésúsar sig með posh breskum hreimi á meðan hún lýsir einhverju stórfenglegu.... í föndurheimum.
Hausinn er stútfullur af hugmyndum og mig langar að loka mig af með saumavélinni sem ég ætla að eignast, hekludótinu og perlunum mínum og missa það. En nei nei, þarf víst að skrifa eitt stykki ritgerð og sinna sambýlismanninum inn á milli og svo er ekki eins og hægri höndin sé góð eftir badmintonið. Það væru ýkjur að segja að einar hafi hagað sér vel, honum var rústað svo og eigandanum og svooo bólginn greyið og ekki séns að hekla mikið fyrr en hann er búinn að jafna sig.
Live Earth tónleikarnir um árið voru heldur betur dýrkeyptir og nú væli ég bæði yfir bak- og einarsverkjum.
Haldið þið að ég sé ekki skemmtileg?
Og hér er bekkurinn minn.

Vantar reyndar tvær og önnur þeirra hefði alveg mátt sleppa að koma yfir höfuð. Sophie vinnur hjá Morgan Stanley og já sagði ég að hún vinnur hjá Morgan Stanley og höfum það á hreinu að hún vinnur hjá Morgan Stanley og hún lætur sko ekki loop of yarn stop herself eins og hún orðaði það áður en við fengum að vita að hún vinnur hjá Morgan Stanley!
Svolítið 2007 hún Sophie og vonlaus í höndunum greyið en hinar frábærar og við Agnes ætlum að kíkja næstu helgi á Kioskiosk, fullt af föndri og gleði og nýjum hugmyndum!
Annars ritgerðagleði og meiri ritgerðagleði jájájájájá....

laugardagur, júlí 18
Skal rústa þessu
Spurning hvort ég eigi óvart að láta læsa mig inni í skólanum yfir helgina?
Byggingin lokar þrjú og opnar næst á mánudaginn (hvað er það samt?) og ég er lööööngu búin að komast að því að það gengur ekkert að lesa heima sama hversu oft ég tel mér trú um annað þó stundum komi góðir dagar svona eins og í gær.
En ástæðan er önnur í þetta skiptið. Þannig er málum háttað að við sambýlismaðurinn ætlum í badminton seinna í dag og eigum pantaðan völl klukkan fjögur. Sumir ákváðu að skella sér í gymið til að taka á því og eru á sérstöku prógrammi en þola ekki brennsluna sem fylgir því og vilja bara lyfta. Þar af leiðandi finnst manninum upplagt að taka mig með í badminton (nokkuð ljóst að við eigum ekki marga vini í London). Hann heldur nefnilega að það það sé auðveldara en að svitna á brettinu í 40mín (nei djók hjólinu því bakið þolir víst ekki brettið - brjósklosaðgerð fyrir 16 árum á ekki enn að hafa áhrif er það?) en að spila við mig.
Held að þetta endi með ósköpum enda bæði tapsár og með keppnisskap. Ég er samt eldri og reyndari og ætla ekki að láta setja mig út af laginu. Get líka kennt einari the iron wrist um ef illa gengur nú eða dregið tapsára manninn með mér í LBT (legs, bums, tums) hjá hollenska hommanum sem fer gjörsamlega á kostum í hverjum tíma; "go fabuuulous girls, gogogogo and get your chest out and stomach in - gorgeous darlings".
En ég held að það sé verra en brettið svo það er eins gott að ég taki á því á eftir og sérstaklega með tilliti til þess að það seinasta sem ég heyrði á leiðinni út í morgun var; hvað eigum við að spila upp á????
Kannski skólahugmyndin sé ekki svona slæm eftir allt saman....

miðvikudagur, júlí 8
Þvaðrið
Það er varla að mig langi að opna fréttamiðlana lengur. Byrja hvern dag á Mogganum þar sem ég nota áskriftina hans afa míns til að lesa blaðið á pdf-formi (námsmaðurinn borgar því bara fyrir Viðskiptablaðið þessa dagana) og svo kíki ég á Eyjuna. Fréttablaðið læt ég yfirleitt eiga sig nema kannski helst um helgar og svo renni ég yfir erlendu fréttavefina.
Ástandið heima er orðið svo ömurlegt að ég fer að verða ónæm fyrir bullinu sem við látum hella yfir okkur. Nenni varla að vera reið lengur en hef áhyggjur af mennta- og lífeyriskerfinu okkar. Ég hef ekki áhuga á að börnin mín fari í skóla þar sem meiri niðurskurður verður en er í dag og hef ansi sterkar skoðanir á gæðum kennslu í grunnskólunum. Hef fylgst með því sem örverpið lærir og eitt sem mér finnst að mætti bæta og annað sem mætti henda út. Og að henni hafi verið leyft að nota reiknivél strax 10 ára ætla ég ekki að ræða - hugarreikningurinn er lítill og svo má alveg hafa raunverulega útreikninga fyrir kortakynslóðina sem veit voðalega lítið um mikilvægi peninga og hvað þeir þýða. Verðmætamatið svo fjarri öllum raunveruleika og viðkvæðið; "notaðu bara kortið" of algengt.
Rétt að hafa skoðanir en langt síðan ég hef rifist og skammast yfir ástandinu. En er það eðlilegt að mig langi ekki til að flytja á skerið nema fyrir fjölskylduna mína og vini?
Hugsa að ég fái nú vinnu þó draumastarfið komi ekki upp í hendurnar á mér. Er líka búin að gera mér grein fyrir að það er ekkert draumastarf til í rauninni heldur draumaaðstæður að vinna undir. Efa það líka stórlega að ég starfi á sama vinnustað lengur en 5 ár í senn enda er normið í dag 3-7 störf fyrir fertugt!
Ég er búin með 3 sem tengjast mínu sviði svo e-ð er eftir og engu að kvíða varðandi það nema að launin dugi ekki fyrir skuldunum sem munu dembast ofan á mann. Annarra manna skuldir en mínar eigin sem er náttúrulega óþolandi en úbbbs get ekki gert neitt við því.
Verð ofsalega leið að hugsa um þetta allt og í rauninni hætt að vera reið. Hérna er ég í London og get leyft mér að kaupa góðan mat og eiga bjór og vín í kælinumu. Ég fæ mat sem ég myndi aldrei leyfa mér að kaupa heima á viðráðanlegu verði; risarækjur, parmaskinku, melónu og aðra góða ávexti, kjúkling, kjöt og lífrænar mjólkurvörur og sojavörur. Þetta er svona þrátt fyrir að pundið er í botni og auðvitað hugsa ég oft í íslenskum krónum enda á námslánum og við ekki farin að vinna fyrir launum í pundum.
En hvernig endar þetta allt saman?
Hvað kemur úr þessum endalausu húsleitunum sérstaks saksóknara, niðurfellingu skulda, rifrilda þingmanna, blaðaskrifa og viðtalsþáttum?
Ekkert, nákvæmlega ekki neitt.
En djöfull megum við ekki láta menntakerfið fá á sig niðurskurð eða lífeyriskerfið skerðast - þetta eru okkar peningar og framtíð barnanna okkar.
Hvern get ég barið til að koma þessu í lag?
Eða á ég að vera áfram hérna úti, sleppa skerinu með öllu og flytja Bauganes 19 og íbúa þess í heilu lagi til mín?
Hef ekki hugmynd og snýst í hringi, svo marga að mig svimar á stundum....

þriðjudagur, júní 30
Hitinn
Komin í bikiníið og ætla að hlamma mér í næsta garð með skólabækurnar, ekki möguleiki að fara á safnið í svona veðri enda heitara inni en úti....

sunnudagur, júní 7
Engar áhyggjur af atvinnuleysi, tek bara skóarann
Ég er búin að uppgötva frábæra leið til að nýta fallegu skópörin mín sem hafa hingað til verið í fínu skóhillunni.
Þannig er mál með vexti að stóra táin mín á hægri fæti er ekki stór heldur sú næst henni. Vanskapaða táin hefur valdið mér miklum erfiðleikum í gegnum tíðina og þegar hún er ekki í toppformi eftir að ég hef látið hana kúldrast í of fallegum skóm sem verður að troða sér í þarf stundum að setja gúmmíplástur á vinkonuna eða svamp utan um hana til að geta hlaupið í íþróttaskónum án þess að finna fyrir því!
En í gær þurfti Betan nauðsynlega að vera í gulum skóm (hitt gula parið mitt er nefnilega með 15cm hæl sjáiði til) við átfittið sem var keypt í tilefni afmælis vinkonu minnar og það var ekki annað í stöðunni en að búa til tásugat. Sambýlismaðurinn vildi að ég færi í hanska þegar ég mundaði dúkhnífinn minnugur heppni minnar en ég lét mér ekki segjast og skórnir eru æði og ég á eftir að nota þá mikið meira en áður.

Verst að ég tók ekki "fyrir" mynd en þessi verður að duga og á myndinni má sjá hversu vel fer um vanskapnaðinn minn huggulega....

föstudagur, maí 22
Sumarið
Það má segja að ég sé komin í sumarfrí eða öllu heldur ritgerðarfrí!
Búið að vera alltof mikið að gera undanfarið og ein bíóferð og einn hittingur það sem ég man eftir síðustu 6 vikur. Núna á líka að njóta aðeins lífsins og ég byrjaði á að skella mér á tveggja daga ráðstefnu, Deming Forum.
Sótti um og komst að á ráðstefnustyrk fyrir nemanda, allt borgað undir mig og ómissandi upplifun. Er svo uppveðruð af öllu sem fram fór og fólkinu sem var á staðnum að það er ekki hægt að ræða við mig, greyið sambýlismaðurinn.
Helgin óráðin nema að mig langar að skella mér í Finsbury garðinn og flatmaga yfir nýju bókunum mínum sem ég keypti á ráðstefnunni og hafa það huggulegt. Eins gott að sólin er komin til að vera.
Svo þarf nú að innheimta matarboð Indverjanna minna sem þeir lofuðu mér í próflestrinum. Annar borðar nú ekkert nema lauk svo það verður spennandi að sjá hvað verður en hinn leyfir sér svindl annað slagið. Ætlum einnig saman til Bath í júní enda kunna strákarnir að keyra vinstra megin og við Imane fáum að sitja í aftursætunum. Verður líka frábært að keyra og geta stoppað þar sem við viljum á leiðinni. Ætlum að gista amk eina nótt en vonandi tvær. Hlakka ofsalega til en er líka spennt að sjá hvernig múslimanum, búddistanum, sikhismanum og Betunni kemur saman. Við Manit svindlari fáum okkur kannski halal kjúkling og drekkum vatn með þegar hin tvö þurfa að biðja....